Skoða Food and Fun í Marshallhúsinu
Við fögnum Food and Fun á La Primavera í Hörpu 26. – 28. febrúar og hlökkum til að taka á móti gestakokkinum okkar Luigi Pomata!

Luigi Pomata er af þriðju kynslóð matreiðslumanna og finnur sinn helsta innblástur í hefðum Carloforte, lítillar eyju við Sardiníu, þaðan sem hann er ættaður.
Hann ólst upp í fjölskyldu veitingamanna og mótaði snemma þá sýn að matreiðsla væri umhyggja í verki og leið til að varðveita sögu heimahaganna.
Stíll hans einkennist af einstakri blöndu af miðjarðarhafsarfleifð — sérstaklega lígúrsk-tabarkískum áhrifum — og nútímalegri nýsköpun,
þar sem hágæða hráefni frá heimaslóðum hans eru ávallt í aðalhlutverki.
Í dag rekur hann nokkra staði í Cagliari, þar á meðal flaggskipið Luigi Pomata, ásamt Luigi Pomata Bistrot og Next Food & Lounge.
Hann er þekktur sem „túnfiskkokkurinn“ og er leiðandi sérfræðingur í túnfiski frá Carloforte, auk þess sem hann rekur matreiðsluskóla þar sem hann deilir þekkingu sinni.
Utan eldhússins er Luigi afkastamikill rithöfundur og hefur gefið út bækur á borð við My Story in a Dish og Tuna and Fish of the Mediterranean.
Hann leiðir einnig mikilvæg samfélagsverkefni eins og Flavors in Color, eða Brögð í lit, sem miðar að því að geramatarupplifun aðgengilega fólki
sem á við örðuleika við að kyngja mat að stríða.