Tuttugu og fimm ástæður til að fagna – Ný bók eftir Leif Kolbeinsson

Verð 5.900 kr.

Ný bók úr eldhúsi Leifs Kolbeinssonar á La Primavera. Matreiðslubókin Tuttugu og fimm er glæsilegt hlaðborð fyrir augað með snarkandi uppskriftum og safaríkum sögum af norðurítalskri matargerð.

Leifur hefur í meira en 25 ár verið boðberi nýrra strauma og ilmandi hefða í matreiðslu. Fyrir tuttugu árum gaf hann út bókina Primavera sem markaði straumhvörf í útgáfu íslenskra matreiðslubóka og hefur átt sér vísan stað í eldhúsum íslenskra matgæðinga. Það má ætla aðdáendur þeirrar bókar taki nýju bókinni fagnandi. Tuttugu og fimm er matreiðslubók með girnilegri blöndu af hefðbundum réttum af matseðli La Primavera og nýjungum þar sem íslenskt hráefni og ítölsk hefð renna saman í unaðslegri matarnautn.

Formála ritaði Ólafur Jóhann Ólafsson. Ljósmyndir eftir Ara Magg prýða bókina sem er hönnuð af Einari Geir.

Bókin fæst á veitingastöðum La Primavera.